Skip to main content

Plaköt sem minna okkur á að vera í núinu

Ný plaköt hafa  nú litið dagsins ljós í vefverslun Krafts sem minna okkur á að staldra við í núinu. Plakötin eru hönnuð af Töru Tjörvadóttur sem heldur úti vörusíðunni https://taratjorva.com/ þar sem hún selur vörur með fallegum handskrifuðum orðum.

Tara er sjálfstætt starfandi ljósmyndari og margmiðlunarhönnuður. Hún er búsett á Egilsstöðum og kynntist Krafti í gegnum Lindu Sæberg sem er í stjórn Krafts og er einmitt að austan. „Ég byrjaði að fylgja Lindu á Instagram og ferðabloggi hennar. Svo þegar hún greindist með krabbamein þá setti hún einmitt inn á Instastory hjá sér að hún væri að láta frysta eggin sín og lýsti því ferli. Hún biðlaði þá til kvenna í leiðinni að gefa egg fyrir einstaklinga sem þurfa á að halda. Ég lét slag standa og fór í hórmónameðferð og gaf egg,“ segir Tara. 

Fyrsta plakatið sem Tara gerði og seldi var fyrir Lindu og var það í raun Linda sem hvatti hana til að fara selja orðin sín á netinu. „Þegar ég sá setninguna „Þú ert kona drauma þinna“ í Instastory hjá Töru þá talaði þessi setning beint til mín og ég bað um að fá að kaupa hana af henni því ég vildi hafa hana upp á vegg hjá mér til að lesa á hverjum degi. Ég benti henni þá einnig á að hún ætti virkilega að skoða það að selja þessar vangaveltur sínar, því ég var nokkuð viss um að hún væri að tala til fleiri en einungis mín. Í dag á ég fjögur plaköt eftir hana sem ég er með á mismunandi veggjum heimilisins til að minna mig á það sem ég þarf að heyra,“ segir Linda. 

„Þegar það kom upp þessi hugmynd hjá okkur Lindu að gera plakat til stuðnings Krafti þá hugsaði ég mig ekki tvisvar um. Ég hef lengi verið að fylgjast með Krafti meðal annars á Instagram og finnst félagið svo jákvætt og heiðarlegt og tengi mín gildi við skilaboð félagsins sem mér finnst senda út frá sér jákvæða og hvetjandi strauma,“ segir Tara. Nýja plakatið ber orðin „hvenær er lífið ef það er ekki núna?“ sem er skírskotun í slagorð félagsins „Lífið er núna“. „Ég tel það vera auðvelt fyrir alla að tengja við að lífið er núna og fannst svo fallegt að setja það upp í spurningu því mér finnst fólk oft hugsa meira um skilaboðin þegar þau koma fram í spurningu,“ segir Tara enn fremur. 

Plakötin eru fáanleg í tveimur stærðum í takmörkuðu upplagi,  í stærð A5  og svo í 30×40 cm. Einungis eru framleitt 100 stykki í hvorri stærð og eru plakötin númerið frá einum í eitt hundrað. A5 plakatið kostar 2.500 kr. og 30×40 cm 5.500 kr. og hægt er að versla þau í vefverslun Krafts. Allur ágóði af sölu plakatanna rennur í starf Krafts og gefur Tara alla vinnu sína. Það er aldrei að vita nema þetta skemmtilega samstarf muni vinda upp á sig í framtíðinni. 

Myndir: Þórdís Reynisdóttir