Alþjóðadagur gegn krabbameinum er haldinn um heim allan í dag 4. febrúar. Að því tilefni hefur Kraftur og Krabbameinsfélagið hrint af stað vitundarvakningu um mikilvægi jafningjastuðnings undir slagorðinu Ég skil þig.
Kraftur setti á laggirnar Stuðningsnetið fyrir um 10 árum síðan og var það algjör bylting í jafningjastuðningi. Fyrir um tveimur árum kom Krabbameinsfélagið inn í Stuðningsnetið og er nú markmiðið að stækka það enn frekar og gera það sýnilegra svo að fleiri geti nýtt sér þennan einstaka stuðning. Stuðningsnetið er fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur.
Jafningjastuðningur skiptir máli
„Það getur verið hjálplegt að ræða við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu og þú ert að ganga í gegnum, einhvern sem hefur þann skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálfur. Þess vegna fór Kraftur á sínum tíma í að búa til vettvang fyrir jafningja til að miðla reynslu sinni á faglegan máta. Ég sjálfur þjálfa alla þá sem vilja vera stuðningsfulltrúar í Stuðningsnetinu og met hvort að þeir séu í stakk búnir til að veita jafningjastuðninginn því það skiptir vissulega máli hvernig jafningjastuðningur er veittur,” segir Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins og Krafts.
Ég skil þig
Ég skil þig herferðin fer að mestu fram á samfélagsmiðlum þar sem birtar eru sögur fólks sem hefur þegið og veitt jafningjastuðning í gegnum Stuðningsnetið. Markmiðið er að opna umræðuna og kynna Stuðningsnetið fyrir þeim sem gætu haft gagn af. Stuðningsnetið er fyrir einstaklinga á öllum aldri og getur nýst fólki hvar sem það býr á landinu. „Stuðningsnetið er svo dýrmætt því maður tengir svo sterkt við þá sem hafa upplifað það sama,“ segir Salvör Sæmundsdóttir, stuðningsfulltrúi og Ólafur Einarsson tekur undir: „Jafningjastuðningur hjálpar og flýtir batanum því andlega hliðin er oft vanmetin.“
Stuðningsnetið er fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur
Þeir sem veita jafningjastuðning í Stuðningsnetinu hafa lokið námskeiði til að auka færni í að miðla reynslu sinni og veita stuðning. Í Stuðningnetinu eru í dag um 100 stuðningsfulltrúar vítt og breitt um landið og eru námskeiðin haldin reglulega. Stuðningsfulltrúarnir eru sjálfboðaliðar og nota reynslu sína til að miðla þekkingu til annarra og hlusta á þá sem leita eftir stuðningi.
Hér geturðu skoðað sögur Stuðningsfulltrúa okkar og kynnt þér Stuðningsnetið, sótt um stuðning eða fengið upplýsingar um stuðningsfulltrúanámskeið.