Skip to main content

Snjódrífurnar leggja af stað á Vatnajökul

Snjódrífurnar sem standa að baki átaksverkefninu, Lífskraftur, leggja af stað í göngu sína yfir Vatnajökul sunnudaginn 7. júní. Markmiðið með Lífskrafti er að safna áheitum fyrir okkur í Krafti og Líf, styrktarfélagi kvennadeildar Landspítalans. Liður í göngunni er jafnframt að minna á mikilvægi útivistar og sjálfseflingar í endurhæfingu og hvetja þær landsmenn til að ganga með þeim í sinni heimabyggð þá daga sem þær eru á göngu á jöklinum.

Fyrirhugað er að gangan taki um 10 daga og Snjódrífurnar munu ganga um 150 km leið frá Jökulheimum þvert yfir jökulinn í austurátt að Eyjabakkajökli. Hægt verður að fylgjast með göngu Snjódrífanna á jöklinum á síðum Lífskrafts á Facebook og Instagram. Við munum einnig segja frá verkefninu og Snjódrífunum á Facebook síðu Krafts og Instagram Krafts.

Félagsmaður í Krafti hún, Sirrý Ágústsdóttir, er upphafsmanneskja átaksins en hún greindist með leghálskrabbamein 2010 og aftur 2015. Í síðara skiptið var ljóst að krabbameinið var krónískt og töldu læknar að hún ætti eitt til þrjú ár eftir ólifað. Nú árið 2020 eru fimm ár liðin og Sirrý fékk útivistarvinkonur sínar, Snjódrífurnar til að fagna lífinu og þessum tímamótum með sér. „Það er mjög táknrænt fyrir mig og viss kaflaskil að takast á við svona krefjandi útivistaráskorun. Í veikindum mínum hef ég ætíð fókuserað á að taka eitt skref í einu og það sama mun ég gera á jöklinum. Ég er ekki mesta íþróttahetjan en ég hef viljann og þannig hef ég getuna til að klára þessa göngu líkt og með veikindin mín. Lífið er alls konar og maður verður oft að bíta á jaxlinn og halda áfram, því lífið er svo æðislega skemmtilegt og gott. Við erum fjórar í hópnum sem höfum fengið krabbamein og náð að yfirstíga það. Mér finnst mikilvægt að koma þeim skilaboðum á framfæri, lífið er ekki búið þó að þú fáir krabbamein…þú verður bara að berjast og halda áfram, þannig munum við allar klára gönguna. Líf og Kraftur studdi okkur og núna viljum við gefa til baka.“

Leiðangursstjórar eru Vilborg Arna Gissurardóttir pól- og Everestfari og Brynhildur Ólafsdóttir Landvættaþjálfari og þrautreyndur fjallaleiðsögumaður. Snjódrífurnar skipa auk Sirrýar, Brynhildar og Vilborgar; Anna Sigríður Arnardóttir, Birna Bragadóttir, Heiða (Nikita) Birgisdóttir, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Hulda Hjálmarsdóttir sem er framkvæmdastjóri Krafts, Karen Kjartansdóttir, Soffía S. Sigurgeirsdóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir. Verndari göngunnar er afi Sirrýar, Gunnar Þórðarson á Borg í Arnarfirði og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og yfirmaður Almannavarna.

„Við erum einstaklega þakklát Snjódrífunum fyrir að hugsa til okkar og leggja okkur lið með þessum hætti. Það að leggja af stað í svona ferð er ekkert smá afrek og verður virkilega áhugavert að fylgjast með þeim. Við vonum svo sannarlega að landsmenn allir hvetji stelpurnar áfram með því að stunda útivist í heimabyggð sinni og heiti einnig á þær í leiðinni,“ segir Elín Sandra Skúladóttir, formaður Krafts.

Hægt er að styðja við Lífskraft með því að senda SMS í símanúmerið 1900

  • Sendið textann “LIF1000” fyrir 1.000 kr.
  • Sendið textannLIF3000 fyrir 3.000 kr.
  • Sendið textannLIF5000 fyrir 5.000 kr.
  • Sendið textannLIF10000 fyrir 10.000 kr.

Einnig er hægt að leggja inn á reikning 1161-26-9900, kt. 501219-0290, eða með AUR appinu í síma 789 4010.