Skip to main content

Sól og sumarstemning á Sumargrilli Krafts

By 21. júní 2019mars 25th, 2024Fréttir

Fimmtudaginn 20. júní hélt Kraftur hið árlega Sumargrill sitt í Guðmundarlundi í Kópavogi. Öllu var til tjaldað á Sumargrillinu þetta árið þar sem það var hluti af afmælisársdagskrá Krafts. Um 200 manns komu og nutu frábærar skemmtunar og samvista með öðrum Kraftsfélögum.

Sirkus Íslands var á svæðinu með andlitsmálningu, blöðrudýr og kandífloss fyrir yngstu kynslóðina og Leikhópurinn Lotta steig á svið. Reiðskólinn Hestalíf var með hesta sem unnt var að láta teyma sig á og að sjálfsögðu voru hoppukastalar á svæðinu. Tuddinn grillaði ofan í mannskapinn dýrindis hamborgara sem meira að segja kláruðust svo mikill var fjöldinn sem kom saman. Fólk skellti sér líka í myndatöku með Instamyndum og gæddi sér á Ava og Kristal frá Ölgerðinni. Söngkonan GDRN söng einnig fyrir viðstadda og svo var enginn annar en Páll Óskar sem steig á svið í lokinn. Palli byrjaði að stýra samsöng þar sem allir sungu afmælissönginn fyrir Kraft og tók svo nokkur lög eins og honum er einum lagið.

Þetta var vægast sagt dásamlegt Sumargrill þar sem veðrið lék við viðstadda og stemningin var alveg hreint frábær.

Stjórn og starfsfólk Krafts vill þakka sjálfboðaliðum sem komu og aðstoðuðu, öllum þeim sem komu á Sumargrillið og að sjálfsögðu öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að gera Sumargrillið að svona frábærum viðburði án ykkar hefði þetta aldrei tekist.

Hér má sjá nokkrar myndir frá þessum dásamlega degi