Skip to main content

Stuðningsfulltrúanámskeið í nóvember.

Kraftur heldur reglulega stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsnetinu fyrir reynslubolta sem geta nýtt reynslu sína öðrum til góða.

Næsta stuðningsfulltrúanámskeið verður haldið í tveimur pörtum miðvikudagana 1. og 8. nóvember, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem lenda í svipuðum sporum.  Að vera stuðningsfulltrúi getur virkilega hjálpað öðrum.

Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu thorri@krabb.is eða með því að fylla út skráningarform. Boðið verður upp á kvöldmat bæði kvöldin í boði Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem starfrækja Stuðningsnetið.

„Það sem hjálpaði mest var að hitta aðra sem höfðu lent í svipuðum sporum, Kraftur bjargaði geðheilsunni minni….“

26 ára félagsmaður sem greindist með ristilkrabbamein