Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, verður með vitundarvakningu og fjáröflunarherferð dagana 21. janúar til 4. febrúar. Markmið herferðarinnar er að vekja athygli á hversu marga krabbamein hefur áhrif á, selja húfur til styrktar félaginu og starfsemi þess sem og afla styrkja fyrir félagið.
„Um 70 ungir einstaklingar greinast með krabbamein á hverju ári. Við viljum vekja athygli á því að krabbamein snertir ekki einungis þann sem greinist með krabbamein heldur fjölmarga í kringum hann þar á meðal maka, foreldra, börn, vini, vandamenn og jafnvel vinnufélaga. Að meðaltali má segja að um 7-10 nánir aðstandendur standi að baki hverjum einstakling,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.
Til að styðja við starfsemi Krafts getur fólk gerst mánaðarlegir styrktaraðilar, sent inn staka styrki eða keypt íslenska „Lífið er núna“ húfu sem var framleidd fyrir átakið. „Heiða Nikita hannaði húfuna fyrir okkur og er hún framleidd af Varma í samstarfi við Ístex. Okkur fannst ekkert annað koma til greina en að vera með íslenska hönnun og framleiðslu á þessum tímum og kemur húfan einstaklega vel út. Hún er úr íslensku lambsullarbandi sem er mýkra en áður hefur þekkst og í innra lagi húfunnar er notast við mjúka merino-ull,“ segir Hulda. Húfan er til í svörtu og appelsínugulu og fæst í vefverslun Krafts, verslun og vefverslun Símans og í verslunum Geysis. Húfan kostar 4.900 krónur og rennur allt andvirði hennar til stuðnings félaginu og starfi þess í þágu ungra einstaklinga sem greinast hafa með krabbamein og aðstandenda.
„Hvíta húsið var svo yndislegt að koma með okkur í verkefnið og leituðu þau til Polarama um að vinna að framleiðslu á auglýsingum og hafa þau saman framleitt stórkostlegt auglýsingarefni þar sem einstaklingar, bæði krabbameinsgreindir og aðstandendur, segja frá sinni reynslu. Hægt er að skoða líka sögur þeirra á síðunni www.lifidernuna.is,“ segir Hulda enn fremur.
Appelsínugulur ljómi mun ráða ríkjum í janúar þar sem Ráðhús Reykjavíkur, Háskóli Íslands, Perlan og Hof á Akureyri verða lýst appelsínugul til að vekja fólk til umhugsunar um ungt fólk og krabbamein. Eins verður Kirkjan á Sauðárkróki lýst appelsínugul þar sem einn viðmælandinn í herferðinni er þaðan.
„Við hvetjum auk þess fólk til að deila reynslu sinni á samfélagsmiðlum um það hvernig krabbamein hefur haft áhrif á það og sýna þannig samstöðu og hversu marga krabbamein snertir. Það er til að mynda hægt að fara inn á vefsíðuna okkar www.lifidernuna.is og fylla þar út form um hvernig krabbamein hefur haft áhrif á þig hvort sem þú ert faðir, móðir, vinkona, sonur o.s.frv. þeim upplýsingum geturðu svo deilt á Facebook með sérstakri mynd. Með því að því að deila sýnir þú samstöðu og færð sent til baka upplýsingar um þá þjónustu og stuðning sem gæti gagnast þér,“ segir Hulda að lokum.
Lokahnykkur átaksins verður þann 4. febrúar, á alþjóðadegi gegn krabbameinum. Þá verður settur upp flottur rafrænn viðburður með frábæru listafólki sem hægt verður að horfa á í gegnum netstreymi þar sem við miðlum til áhorfenda hvernig þeir geta styrkt starfið hjá Krafti. Viðburðurinn er í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkur og verður nánar sagt frá honum síðar.