
Hið árlega sumargrill Krafts!
Það er alltaf stuð og stemning á sumargrilli Krafts, en þetta er einn stærsti viðburður sem við höldum árlega fyrir félagsmenn okkar og fjölskyldur þeirra. Við höfum pantað sólina fimmtudaginn 26. júní og trúum að við verðum ekki svikin þetta árið. Heyrst hefur að Prettyboitjokko ætli að halda uppi svakalegu stuði, ísbíllinn mætir á svæðið eftir að allir hafa borðað sig sadda af grilluðum hamborgurum og Sirkus Íslands ætlar að kitla hláturtaugarnar hjá litlum krílum.
Þetta og margt fleira fimmtudaginn 26. júní – Við hvetjum þig til að taka daginn frá!!
Tími og staðsetning verður auglýst þegar nær dregur – Viðburðurinn er opinn félagsmönnum og fjölskyldum þeirra.