Skip to main content

Tryggjum gæði skimana! 

Í ljósi fregna síðustu daga um mistök sem urðu í greiningarferli eftir leghálsskimun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins árið 2018 þá viljum við í Krafti koma eftirfarandi á framfæri. 

Konur á aldursbilinu 23 til 65 ára eru boðaðar í leghálskrabbameinsleit af Leitarstöð Krabbameinsfélagsins á þriggja ára fresti. Á hverju ári eru það um 27.000 konur og frumurannsóknarstofa Leitarstöðvarinnar skoðar árlega 25.000 til 30.000 leghálssýni. Það fylgir því vissulega mikil ábyrgð að þau séu rétt greind. Konur treysta því að niðurstöðvar skimana þeirra séu rétt greindar og að þær fái réttar niðurstöður. Fjölmiðlar hafa síðustu daga fjallað um mistök sem voru gerð hjá frumurannsóknarstofunni við greiningu sýna. Kona sem er nú greind með ólæknandi leghálskrabbamein fékk neikvæðar niðurstöður en ljóst er að mögulega hefði verið hægt að koma í veg fyrir krabbameinið ef það hefði verið greinst á forstigum sjúkdómsins. Nú hefur Leitarstöðin sett af stað endurskoðun á um 6.000 sýnum frá árinu 2018 og er þegar komið í ljós að um 30 konur hafa fengið ranga niðurstöðu vegna frumubreytinga í leghálsskoðun. 

Það er ekkert sem getur bætt þeim konum sem fengu ranga greiningu skaðann. Það hjálpar þeim ekki að bæta ferla og gera betur í framtíðinni. Skaðinn er þegar skeður. Það er hins vegar mikilvægt fyrir aðrar konur að Krabbameinsfélagið og heilbrigðisyfirvöld fari yfir öll þau sýni sem kunna að vera röng og skoði hvað brást. Að öflugt gæðaeftirlit grípi þau mannlegu mistök sem starfsmenn kunna að gera.

Mistök sem þessi mega ekki verða til þess að konur hætti að mæta í skimun heldur aftur á móti undirstriki mikilvægi skimunar. Frá því skimun hófst árið 1963 hefur dánartíðni vegna leghálskrabbameina minnkað um 83% og er því ljóst að regluleg skimun bjargar lífum. 

Þrátt fyrir þann góða árangur sem skimanir hafa sýnt þá hefur dregið úr mætingu í skimanir fyrir leghálskrabbamein á Íslandi. Til þess að bregðast við því hefur Krabbameinsfélagið blásið til sóknar síðasta ár og hvatt konur til að mæta í skimun m.a. með því að bjóða fyrstu skoðun gjaldfrjálsa. Nú er hætta á að traust kvenna til leghálsskimana sé brotið og það eykur líkurnar á að konur mæti ekki í skimun. Það getur haft skelfilegar afleiðingar.  

Um áramót munu skimanir færast yfir til Landspítalans og heilsugæslunnar. Enn er óljóst hvernig sú framkvæmd mun fara fram. En áfram verður lífsnauðsynlegt að halda uppi skimunum sem greina frumubreytingar. 

 Kraftur skorar á Krabbameinsfélagið og stjórnvöld að tryggja gæði skimana og gæðaeftirlit til að draga úr líkum á að svona mistök eigi sér aftur stað. Líf kvenna eru í húfi.

Hér má sjá viðtal við Huldu Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra Krafts, um málið í kvöldfréttum RÚV 2. september siðastliðinn 

Ljóst er að margar konur upplifa nú óöryggi og treysta jafnvel ekki þeim niðurstöðum sem þær hafa fengið frá Leitarstöðinni. Við hvetjum þær eindregið til að hafa samband við ráðgjafa hjá Krabbameinsfélaginu í síma 800-4040 eða Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.