Skip to main content

Úthlutun úr Neyðarsjóði Krafts

By 13. apríl 2018mars 25th, 2024Fréttir

Úthlutað verður úr Neyðarsjóði Krafts í maí nk. Umsóknarfrestur er til og með 30.apríl.
Neyðarsjóðnum er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og lent hefur í fjárhagslegum erfiðleikum vegna veikinda sinna. Neyðarsjóðurinn er ætlaður til að standa straum af læknis- og lyfjakostnaði sem og öðrum kostnaði sem getur hlotist ef veikindum viðkomandi.

Nú í fyrsta skipti er hægt að sækja um rafrænt, sjá hér. Með styrkumsókn skal senda eftirtalin gögn:

a. Læknisvottorð þar sem fram kemur staðfesting á sjúkdómnum og hvenær viðkomandi greindist.
b. Kvittanir og reikninga vegna læknis- og/eða lyfjakostnaðar.s.l tvö ár.
c. Skattaskýrsla síðustu tveggja almanaksára

Nánari upplýsingar um neyðarsjóðinn gefur Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri, í síma 866-9600 og einnig má sjá meira um neyðarsjóðinn hér. Hægt er að fá aðstoð við útfyllingu umsóknar hjá starfsmanni Krafts eða félagsráðgjafa.