Skip to main content

Vegleg gjöf frá Huginn

By 16. apríl 2025Fréttir

Huginn, skólafélag Menntaskólans á Akureyri, kom til okkar í vikunni færandi hendi með veglega gjöf til styrktar Krafti.

Huginn er nemendafélagið í MA og kjölfestan í skólalífinu. Á vegum þess starfa fjölmörg félög og klúbbar, blandaður kór, íþróttafélag, leikfélag, tónlistarfélag, málfundafélag, félög áhugaljósmyndara og myndbandamanna og þannig mætti lengi telja.

Eftir vel heppnaða góðgerðarviku á dögunum á þeirra vegum, safnaði félagið alls 1.086.000 kr. Virkilega glæsilegt og skemmtilegt framtak, sem við hjá Krafti erum mjög þakklát fyrir. Það voru flottir fulltrúar frá Huginn sem afhentu Sólveigu, framkvæmdastjóra Krafts (og fyrrum menntskælingi, sem var augljóslega stolt af nemendafélaginu sínu) þessa veglegu gjöf!

Við þökkum Huginn kærlega fyrir sitt fallega framlag til Krafts 🧡

Close Menu