Skip to main content

Viðskiptavinir VÍS hafa safnað um 3 milljónum króna fyrir Kraft

Á ári hverju ári greinast 70 ungir einstaklingar með krabbamein á aldrinum 18-40 ára ─ en árlega greinast um 1600 einstaklingar með krabbamein á Íslandi. Daglega deyr ein kona og einn karl úr hjarta- og æðasjúkdómum hér á landi. Á hverju ári greinast um 25 einstaklingar með MS sjúkdóminn og um 740 manns eru með sjúkdóminn á Íslandi. Ljóst er að þessir sjúkdómar hafa víðtæk áhrif í íslensku samfélagi.

Viðskiptavinir VÍS hafa val

VÍS styður heimsmarkmið númer þrjú sem beinir kastljósinu sínu að heilsu og vellíðan. Lögð er sérstök áhersla á öflugar forvarnir í nánu samstarfi við viðskiptavini, samfélaginu til heilla. Þess vegna hafa viðskiptavinir VÍS nú val um að styrkja góð málefni þegar þeir kaupa líf- og sjúkdómatryggingar á netinu. Valið stendur á milli þriggja góðgerðarfélaga: Krafts, Hjartaheilla og MS-félagsins.

Sex milljónir á fimm mánuðum

Fyrir hverja milljón, sem viðskiptavinur velur í tryggingarfjárhæð, fara 1.000 krónur til góðgerðarfélagsins. Viðskiptavinir VÍS hafa því val um að styrkja gott málefni, þeim að kostnaðarlausu. Styrkurinn kemur frá VÍS. Frá því samstarfið við góðgerðarfélögin hófst í lok mars hafa sex milljónir safnast til góðgerðarfélaganna og skiptist upphæðin á eftirfarandi hátt. Kraftur: 3.000.000 kr., Hjartaheill: 1.900.000 kr. og MS félagið: 1.100.000 kr.

„Þetta samstarf kemur sér ótrúlega vel á tímum sem þessum þar sem erfiðara er að afla styrkja fyrir félagið en Kraftur er félag sem er alfarið rekið fyrir velvild fólks og fyrirtækja í landinu. Við erum því ótrúlega þakklát fyrir þetta frábæra framtak VÍS og þeim viðskiptavinum sem hingað til hafa valið að styrkja okkur við kaup á líf- og sjúkdómatryggingu,“ sagði Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts við afhendingu styrksins.
Samstarfið mun halda áfram og því gefst fólki tækifæri til að styrkja Kraft áfram við kaup á líf-og sjúkdómatryggingum.

Hér má sjá myndir frá afhendingu styrksins til góðgerðarfélaganna þriggja