Skip to main content

VÍS hjálpar okkur að hjálpa öðrum

Undanfarið ár hafa viðskiptavinir VÍS haft val um að styrkja góðgerðarfélög þegar þeir kaupa líf- og sjúkdómatryggingar á netinu. Fyrir hverja milljón, sem viðskiptavinur valdi í tryggingarfjárhæð, fóru 1.000 krónur til góðgerðarfélags. VÍS afhenti Krafti nýverið 7.800.673 krónur sem að söfnuðust í þessu verkefni.

Viðskiptavnir Vís gátu valið um þrjú góðgerðafélög þegar þeir keyptu sér líf- og sjúkdómatryggingu á netinu, Kraft, Hjartaheill og MS-félagið. Á rúmu ári söfnuðust 15.390.757 krónur í verkefninu en því er nú lokið.

Guðmundur Óskarsson, markaðsstjóri VÍS, var ánægður með móttökurnar hjá viðskiptavinum VÍS. ,,Við erum virkilega stolt og þakklát fyrir hversu vel viðskiptavinir okkar tóku þessu framtaki. Enginn býst við því að missa heilsuna en staðreyndin er sú að allir geta lent í því. Líf- og sjúkdómatryggingar eru því mikilvægar til þess að draga úr fjárhagslegum afleiðingum þess að veikjast alvarlega. Við erum viss um styrkurinn nýtast vel í því mikilvæga starfi sem góðgerðarfélögin sinna ─ og erum stolt af því að geta lagt okkar að mörkum, ekki síst í þegar þrengir að rekstrarumhverfi góðgerðarfélaganna í heimsfaraldrinum. Styrkurinn er því vonandi byr undir báða vængi hjá öllum félögunum.

Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts, var ánægð með stuðninginn. „Það er frábært þegar fyrirtæki eins og VÍS sýnir samfélagslega ábyrgð í verki og lætur gott af sér leiða til mikilvægra málefna. Sérstaklega í ljósi þess að einstaklingar sem greinast með krabbamein, taugasjúkdóma og hjartasjúkdóma eiga oft erfiðara með að sjúkdómatryggja sig eftir á. Við erum einstaklega þakklát fyrir þetta rausnarlega framlag sem mun svo sannarlega nýtast í þágu ungs fólks með krabbamein og aðstandenda þeirra. Takk fyrir að hjálpa okkur að hjálpa öðrum.”