Skip to main content

Vorúthlutun Neyðarsjóðs Krafts

Komið er að vorúthlutun úr Neyðarsjóði Krafts. Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl. Neyðarsjóðnum er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og hefur lent í fjárhagsörðuleikum vegna veikinda sinna.

Neyðarsjóðnum er ætlað að standa straum af kostnaði sem fellur utan greiðsluþátttöku (sálfræðiþjónusta, tannlæknakostnaður og tæknifrjóvgun svo eitthvað sé nefnt) sem og öðrum tekjumissi sem getur hlotist vegna veikinda viðkomandi.

Nú er hægt að sækja um rafrænt á heimasíðu félagsins. Með styrkumsókn skal senda eftirtalin gögn:

a. Nýlegt læknisvottorð og/eða greinagerð frá fagaðila þar sem fram kemur staðfesting á sjúkdómnum og tímasetning greiningar.
b. Gögn eða reikningar vegna kostnaðarliða sem tilgreindir eru í umsókn 
c. Skattaskýrsla síðustu tveggja almanaksára (ef breytingar hafa orðið á eigna/skuldastöðu frá síðasta skattaframtli er mikilvægt er að senda fylgiskjöl sem sýna fram á breytingu á skuldastöðu)

Ef þú ætlar að sækja um niðurgreiðslu á tannlæknakostnaði þarf sá hinn sami að skila inn vottorði frá lækni um að kostnaðurinn sé kominn til vegna veikinda eða meðferðar.

Nánari upplýsingar um neyðarsjóðinn gefur Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts, í síma 866-9600 eða í tölvupósti hulda@kraftur.org. Einnig má sjá meira um neyðarsjóðinn hér.

*Ekki hika við að hafa samband ef þig vantar aðstoð við útfyllingu umsóknar, starfsmaður Krafts eða félagsráðgjafi getur aðstoðað þig eftir bestu getu.