Grillkvöld verður hjá Ungliðahópnum þann 17.maí. Mæting kl kl. 19:30 í Ljósinu og verður grillað saman í góðum félagsskap. Vonandi verða veðurguðirnir með okkur í liði og sólin fær að skína 🙂
Frekari upplýsingar um viðburðinn má finna inn á Facebookhóp Ungliðahópsins.
Ungliðahópurinn er fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein á aldrinum 18-29 ára og aðstandendur. Hópurinn hittist tvisvar sinnum í mánuði og er samstarfsverkefni Krafts, Ljóssins og SKB.
Umsjónarmaður hópsins er Kristján Friðriksson, s: 866 2826 og tölvupóstur: kristjan.fridriks@gmail.com