- Þessi viðburður er liðinn.
AðstandendaKraftur – stuðningshópur

AðstandendaKraftur var stofnaður af aðstandendum fyrir aðstandendur og hittist tvisvar í mánuði annað hvort í Skógarhlíð 8 eða í rafrænum heimi á Teams.
Dagskrá október:
Mið. 13. október -hittingur í skógarhlíð 8
- Ætlum að hafa það gott saman, spjalla, snæða góðan mat og fá nokkra félagsmenn með reynslu í heimsókn.
FRESTAÐ – Mið. 27. október – Rafrænn hittingur á Teams –SKRÁ ÞARF NETFANG OG SKRÁNING FER FRAM HÉR.
- Hittumst á Teams og ræðum saman um áskoranir sem við erum að takast á við í dagsdaglegu lífi sem aðstandendur.
- Nýtum okkur reynsluna og hjálpumst að við að finna bjargráð til að takast á við krefjandi aðstæður.
Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum.
Hlökkum til að sjá þig ❤
Umsjónarmaður hópsins er Hrefna Björk Sigvaldadóttir starfsmaður Krafts en hún hefur sjálf reynslu af því að vera aðstandandi.
Hægt er að ná í Hrefnu í síma 866-9698 eða í gegnum hrefna@kraftur.org, en einnig er hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.