Ætlum að hittast klukkan 11:00 við bílastæðið sunnan megin við Úlfarsfell
Fjöldi gönguleiða er upp á Úlfarsfell og er það eitt vinsælasta fjallið á höfuðborgarsvæðinu. Af toppnum er fallegt útsýni yfir Reykjavík og nágrenni. Gangan tekur um klukkustund og er fjallið 296 metra hátt. Komum saman og njótum þess að vera úti að hreyfa okkur í fallegri náttúru á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja en mælum með góðum skóbúnaði.
Kraftsfélagar, fjölskyldur, börn og vinir þeirra eru hjartanlega velkomin.
Endilega meldið ykkur á viðburðinn hér.
Við munum taka mið af veðri og snjóþunga og allar breytingar á gönguleið verða tilkynntar hér á viðburðinum.
Þú getur fylgst með okkur á Facebook og beðið um inngöngu í hópinn hér