Ætlum að hittast klukkan 11:00 á bílastæðinu við Helluvatn. Best er að fara inn í Heiðmörkina Rauðhólameginn og keyra beina leið þar til þú kemur að brú hjá Elliðarvatni, ferð yfir brúna og þar er bílastæði á vinstri hönd.
Hringurinn er um 6,7 km og tekur gangan um 1,5 klukkustundir. Gengið er eftir göngustígum í skóglendinu sem og meðfram vatninu. Frábær ganga sem hentar flest öllum 🙂 Ekki mikl hækkun á leiðinni.
Kraftsfélagar, fjölskyldur, börn og vinir þeirra eru hjartanlega velkomin.
Endilega meldið ykkur á viðburðinn hér.
Að klífa brattann er gönguhópur sem Kraftskonan Ragnheiður Guðmundsdótttir leiðir en hún hefur notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.
Göngurnar eru fyrir alla þá sem hafa áhuga á nota göngur til heilsueflingar, til að njóta íslenskrar náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.
Ragnheiður (sími: 663-9360)
Þú getur fylgst með okkur á Facebook og beðið um inngöngu í hópinn hér