Laugardaginn 18. júní ætlar gönguhópurinn Að klífa brattann að ganga upp í Reykjadal fyrir ofan Hveragerði. Mæting er við Olís við Rauðavatn kl. 10:30 og sameinast þar í bíla.
Reykjadalur er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins í afar fögru og friðsælu umhverfi.
Fyrst er gengið upp hæðir er nefnast Rjúpnabrekkur og fellur þá Reykjadalsá í gili til vinstri er nefnist Djúpagil. Eftir að hafa gengið yfir nokkra ása og gil er komið niður í Reykjadal. Hér er fagurt um að litast og má segja að það rjúki hveragufa undan hverjum steini. Dalurinn endar í Klambragili og eru þá rúmir 3 kílómetrar að baki.
Fyrir þá sem vilja baða sig í ánni takið með ykkur sundföt og handklæði.
Huga þarf að góðum skóbúnaði og gott er að taka með sér göngustafi, orkustykki og vatnsflösku.
Endilega meldaðu þig á viðburðinn hér svo við getum áætlað fjöldann, því við viljum ekki skilja neinn eftir.
Atli þjálfari FítonsKrafts mun leiða gönguna. Síminn hjá Atla er: 663-2252.
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin.