Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

AðstandendaKraftur – Lokaslútt fyrir sumarið

6. júní @ 17:00 - 19:00

AðstandendaKraftur ætlar að bjóða upp á hitting í Cafe Flóru í Grasagarðinum í spjall og notalegheit fimmtudaginn 6. júní kl. 17:00. Byrjum á léttri göngu í Grasagarðinum.
Hisst verður á bílastæðinu hjá Grasagarðinum kl. 17 og röltum saman þaðan. Þessi viðburður verður sá síðasti fyrir sumarið hjá AðstandendaKrafti.

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum.

Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.

Umsjónarmaður hópsins er Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi sem hefur einnig reynslu af því sjálf að hafa greinst með krabbamein. Guðlaug býður einnig upp á þjónustu sem náms- og starfsráðgjafi. Nánar um það hér. 

Upplýsingar

Dagsetning:
6. júní
Tímasetning:
17:00 - 19:00

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website