Þriðjudaginn 26. apríl kl. 20 er opið hús fyrir aðstandendur.
Stutt fræðsla verður um þann stuðning sem er í boði fyrir aðstandendur og boðið upp á jafningjaspjall milli aðstandenda.
Við þekkjum það sem höfum verið í þessum sporum hversu ómetanlegt það getur verið að tala við aðra sem hafa svipaða reynslu.
Við verðum í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Ávallt heitt á könnunni og boðið er upp á léttar veitingar.
Endilega meldaðu þig á viðburðinn okkar á FB
Hlökkum til að sjá þig ❤
Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi. Ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum
Umsjónarmaður hópsins er Hrefna Björk Sigvaldadóttir starfsmaður Krafts en hún hefur sjálf reynslu af því að vera aðstandandi.
Hægt er að ná í Hrefnu í síma 866-9698 eða í gegnum hrefna@kraftur.org, en einnig er hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.