AðstandendaKraftur var stofnaður af aðstandendum fyrir aðstandendur og hittist annan hvern þriðjudag annað hvort í Skógarhlíð 8 eða í rafrænum heimi á Teams.
Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum.
Hlökkum til að sjá þig ❤
Umsjónarmaður AðstandendaKrafts er Hrefna Björk Sigvaldadóttir sem er starfsmaður Krafts og aðstandandi. Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á facebook hér.