Fimmtudaginn 7.desember verður haldið hið árlega aðventukvöld Krafts í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8 frá
kl. 18-21 fyrir félagsmenn okkar og fjölskyldu.
Dagskráin verður með glæsilegasta móti en fram koma:
VILBORG DAVÍÐSDÓTTIR ritöfundur les upp úr nýrri bók sinni og
SIGGA EYRÚN SÖNGKONA OG KARL OLGEIRS PÍANÓNLEIKARI og flytur nokkur lög.
EVA RUZA SNAPDROTTNING kemur síðan og dregur út í jólahappdrættinu okkar.
Ótrúlega margir og flottir vinningar í boði. Má þar nefna gjafakort fyrir 2 út að borða á Grillmarkaðinn, gjafakort í leikhús, varningur frá Eirberg, gjafakort í Bláa lónið svo eitthvað sé nefnt. Munum vera dugleg að setja inn vinninga jafnóðum.
Einnig verður hlaðborð með allskyns jólaveitingum fyrir alla og jólakonfektið okkar verður auðvitað til sölu á staðnum ♥
Hlökkum til að sjá ykkur í kósý fíling á aðventunni 🙂
Vinsamlegast meldið ykkur á viðburðinn: https://www.facebook.com/events/1461364703916791/