Fimmtudagskvöldið 12. október næstkomandi verður bíókvöld í Krafti þar sem Ungliðahópurinn ætlar að hittast kl. 20:00 og horfa á einhverja geggjaða bíómynd saman á skjávarpa s.k. movienight stemmning.
Boðið verður uppá popp og kók.
Áhugasamir skrái sig með því að hafa samband við Kristján.
Ungliðahópurinn er fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein á aldrinum 18-29 ára og aðstandendur. Hópurinn hittist tvisvar sinnum í mánuði og er samstarfsverkefni Krafts, Ljóssins og SKB.
Umsjónarmaður hópsins er Kristján Friðriksson, s: 866 2826 og tölvupóstur: kristjan.fridriks@gmail.com