FítonsYoga eru blandaðir jógatímar bæði fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur. Annars vegar er lögð áhersla á að styrkja líkamann og hugann með jógaflæði. Hins vegar er lögð áhersla á teygjur, slökun og hugleiðslu.
Í tímunum verður heimskpeki yoga kynnt fyrir þátttakendum.
FítonsYoga hentar öllum, stirðum og liðugum, stelpum og strákum, vönum og óvönum.
Jógatímarnir eru haldnir einu sinni í viku, mið. kl. 17:15 – 18:15 í sal í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Tímarnir eru félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Yogakennarinn
Elín Skúladóttir mun sjá um FítonsYoga en hún kynntist yoga fyrir rúmum áratug síðan þegar hún réð sig til starfa á lúxus skemmtiferðarskipi. Hún ætlaði sér að starfa sem þolfimileiðbeinandi en yoga var vinsælla á skipinu svo hún var send á yoga kennaranámskeið. Elín sigldi um höfin blá og kenndi yoga og hélt því áfram þegar hún kom í land. Hún hefur að mestu lokið meistaranámi í íþrótta- og heilsufræðum frá Háskóla Íslands.
Elín greindist sjálf með brjóstakrabbamein árið 2017.
Flæðum saman inn í veturinn <3