Kraftur býður til fjölskyldustundar í Fjölskyldulandi 25. maí nk. milli kl 16:00 til 18:00.
Fjölskylduland er samverustaður sem svo margar fjölskyldur hafa beðið eftir. Fjölskylduland er fyrsti heildræni innileikvöllur og fjölskyldumiðstöð Íslands. Lögð er áhersla á að skapa fallegt, öruggt og örvandi umhverfi fyrir börn að grunnskólaaldri sem og styðjandi umhverfi fyrir foreldra.
Kraftur er með sal út af fyrir sig þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og smá lita- og leiksvæði fyrir eldri börnin.