Vilt þú ná hámarks árangri árið 2021 og verða besta útgáfan af þér?
Okkur hjá MUNUM og Krafti langar að bjóða þér á netfyrirlestur sem getur hjálpað þér að skipuleggja árið með það að leiðarljósi að hámarka líkur á árangri og nýta tímann sem best með jákvætt hugarfar að vopni.
Fyrirlestrinum verður streymt á netinu og er nauðsynlegt að skrá sig hér.
Á fyrirlestrinum verður farið í hversu mikilvægt það er að kortleggja drauma sína og langanir og hvernig við hámörkum líkur á því að láta drauma okkar verða að veruleika. Farið verður markvisst í gegnum þau skref sem liggja að baki farsællar markmiðasetningar og farið yfir leiðir til þess að hámarka tímastjórnun með því að forgangsraða, tileinka sér jákvæða hugsun á einfaldan hátt og hvernig megi nota MUNUM dagbókina sem ákveðið verkfæri í þessari vinnu.
Fyrirlesarar eru eigendur MUNUM, Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og doktor í Líf- og læknavísindum Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, viðskipta- og markaðsfræðingur & markþjálfi.
Vonumst til að sjá sem flesta.