Ragga Nagli fer yfir vanafræðin í þessum fyrirlestri og hvernig við getum notað þá þekkingu til að gera heilsuhegðun að vana, sem er fastur í taugakerfinu, ásamt því að búa til umhverfi sem styður við þessar nýju heilsuvenjur.
____________________________________________
Mánudaginn 27. mars kl. 12, ætlar snillingurinn Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, að hitta okkur í rafrænum heimi og fara með okkur yfir hvernig við getum fest heilsuvenjur í sessi í eitt skipti fyrir öll.