Næsti fyrirlestur í mánaðarlegri fyrirlestraröð Krafts – Ungt fólk og krabbamein verður miðvikudaginn 23.október kl. 17:15 í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Flestir sem stríða við alvarleg veikindi kannast við að upplifa streitu og óvissu sem getur kallað fram kvíða og vanlíðan. Í þessum fyrirlestri munu sálfræðingarnir Sóley Dröfn Davíðsdóttir og Anna Sigríður Jökulsdóttir, frá Kvíðameðferðarstöðinni fjalla um streitustjórnun og óvissuþol í veikindum og hvaða bjargráð við getum nýtt okkur til að takast á við krefjandi aðstæður. Einnig mun félagsmaður okkar Gísli Álfgeirsson segja frá sinni reynslu og hvernig hann hefur tekist á við streitu sem hefur fylgt veikindum konu hans sem féll frá síðasta sumar.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og boðið verður upp á samlokur frá Joe and the juice.
Fyrirlestrinum verður streymt í beinni á netinu og mun einnig vera sýnt frá Krabbameinsfélaginu á Akureyri.