Miðvikudaginn 5. maí ætlar Kraftur skella sér í Frísbígolf á Klambratúni með aðstoð frá Frisbígolfbúðinni.
Allur búnaður verður á staðnum og nóg af diskum fyrir alla en þeir sem vilja geta auðvitað tekið með eigið sett af diskum.
Við ætlum við að hittast klukkan 17:15 á bílastæðinu við Kjarvalsstaði. Við munum síðan rölta saman inn á túnið í frísbígolf. Þú þarft ekkert að kunna leikinn heldur förum við yfir reglurnar og höfum svo gaman saman en aðal markmiðið er ekki að vinna heldur að koma saman og njóta líðandi stundar og vonandi góða veðursins 🙂