Þriðjudaginn 28. nóvember nk. verður haldinn þriðji fyrirlesturinn í mánaðarlegri fyrirlestraröð Krafts – Ungt fólk og krabbamein.
Frjósemi og krabbamein. Áhrif sjúkdómsgreiningar, meðferða og frjósemisverndandi úrræði. Dr. Ásgerður Sverrisdóttir, krabbameinslæknir á Landspítalanum fjallar um ástæður ófrjósemis ungs fólks vegna krabbameinsmeðferða.
Ingunn Jónsdóttir, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir fjallar um þjónustu IVF Klíníkunnar.
Fyrirlesturinn hefst kl 17.15 og verður haldinn í húsakynnum Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, 1. hæð.
Allir eru velkomnir og boðið verður upp á léttar veitingar.
Vinsamlegast meldið ykkur á viðburðinn: https://www.facebook.com/events/130997760897142/