- Þessi viðburður er liðinn.
Fyrsti fundur Ungliðahópsins

Nú fer starf Ungliðahóps Krafts, Ljóssins og SKB að hefjast aftur eftir sumarfrí en fyrsti hittingur hópsins verður fimmtudaginn 14. september næstkomandi kl. 19:00 í Ljósinu. Ungliðahópurinn er stuðningshópur fyrir ungt fólk á aldrinum 18-29 ára sem greinst hefur með krabbamein.
Á fyrsta fundi vetrarins verður boðið uppá kvöldmat og verður í sameiningu við hópinn safnað hugmyndum fyrir starfið í vetur 🙂
Hvetjum alla ungliða í Krafti til að mæta og kynna sér starfið hjá Ungliðahópnum sem er vægast sagt skemmtilegt.
Vinsamlegast meldið ykkur á viðburðinn með því að senda tölvupóst á kristjan.fridriks@gmail.com eða finnið Ungliðahópinn á Facebook.