Fyrsta ganga Gönguhópsins Að klífa brattann í maí verður upp á Helgafell í Mosfellsbæ þriðjudaginn 10. maí kl. 17:30.
Hvetjum alla félagsmenn að fjölmenna í göngurnar og taka með sér fjölskyldu og vini. Hringurinn er um 6 km með um 150 metra hækkun. Gangan hentar flestum getustigum en fyrir suma væri gott að hafa meðferðis göngustafi.
Við ætlum að hittast á litlu bílastæði á Skammdalsvegi í Mosfellsdal.
Beygt er inn á Þingvallarveg frá Vestulandsvegi. Ekið er um 1,5 km þar til komið er að malarvegi á hægri hönd, það er Skammdalsvegur og bílastæðið er um 150m ofar á vinstri hönd
Endilega meldaðu þig á viðburðinn hér svo við getum áætlað fjöldann, því við viljum ekki skilja neinn eftir
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Einnig eru göngurnar kjörinn vettvangur í undirbúning fyrir gönguna okkar yfir Fimmvörðuhálsin í sumar 😃
Atli (sími: 663-2252)
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin.