Ykkur er boðið með í göngu á laugardaginn 🙂
Næstkomandi laugardag 5.maí kl. 11 til 13 ætlar FítonsKraftur að labba upp á Búrfellsgjá. Gangan er þægileg, þar sem ekki er mikil hækkun og ætti því að henta flestum. Allir velkomnir, vinir, fjölskylda og gæludýr 🙂
Til að komast á upphafsstaðinn er keyrt að Vífilsstaðavatni og beygt til hægri inn á Elliðavatnsveg. Þá er keyrður smá spölur, beygt inn á Heiðmerkurveg og haldið áfram. Vegurinn breytist i malarveg en stuttu eftir að malbiki sleppur kemur kröpp beygja á vinstri hönd og þar er að finna lítið bílaplan þar sem hópurinn hittist.
Ef þið týnist getið þið haft samband við Atla þjálfara í síma: 663-2252