FítonsKraftur ætlar að byrja árið með stæl og skella sér á gönguskíði í Bláfjöllum. Skíði og skó fáum við lánuð á svæðinu svo eina sem þarf eru hlý og góð föt og nesti 🙂 Það ætti að vera öllum fært að mæta þar sem okkur verða kennd byrjendaökin af Auði gönguskíðakennara til margra ára.
Viðburðurinn er öllum félagsmönnum Krafts opinn og að kostnaðarlausu en þarf að skrá sig með að senda tölvupóst á fitonskraftur@kraftur.org.
Áætlað er að hittast hjá Olís Norðlingaholti kl. 10 og sameinast þar í bíla 🙂
Frekari upplýsingar gefur Atli þjálfari í síma, 663-2252.