Í samvinnu við Ljónshjarta ætlar Kraftur að bjóða félagsmönnum sínum sem hafa misst maka á erindi hjá Ljónshjarta. Samtökin kynna lauslega starfsemi sína og verður Sigríður Kristín með erindi um fyrstu tvö árin eftir makamissi. En Sigríður starfar sem Fríkirkju prestur í Hafnarfirði og hefur mikla reynslu að vinna með fólki í sorg. Erindið er einungis ætlað þeim sem hafa misst maka en auðvitað getur þú tekið með þér náinn vin eða ættingja til stuðnings. Léttur kvöldverður í boði ásamt kaffi og með því.