Við ætlum að skella okkur á spunasýningu Improv Ísland, miðvikudaginn, 29. janúar kl. 20:00.
Improv Ísland hópurinn býður upp á fjölbreyttar og ófyrirsjáanlegar grín-spunasýningar í Þjóðleikhúskjallaranum á hverju miðvikudagskvöldi. Þau sýna ólík spunaform og fá til sín ýmsa þjóðþekkta gesti. Í leikhópnum eru rúmlega 20 spunaleikarar sem skiptast á að sýna í hverri viku. Dóra Jóhannsdóttir er listrænn stjórnandi Improv Ísland og Karl Olgeirsson er tónlistarstjóri hópsins.
Það er nær alltaf fullt á allar spunasýningar Improv Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum og stór hluti áhorfenda kemur aftur og aftur enda eru engar tvær sýningar eins og engum leiðist að hlæja!
Sýningin er Kraftsfélögum að kostnaðarlausu en takmarkað sætapláss er í boði svo það borgar sig að skrá sig sem fyrst. Fólk getur líka keypt sig inn á sýninguna hjá Improv Ísland.