Kaffihúsakvöld Krafts eru alltaf haldin fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 20. Þennan miðvikudag ætlum við að hittast í Ljósinu, Langholtsvegi 43. Kaffihúsakvöldin er vettvangur fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur til að hitta fólk í svipuðum aðstæðum. Fulltrúar frá Krafti taka vel á móti ykkur yfir rjúkandi heitum kaffibolla 🙂
Ef þið hafið einhverjar spurningar getið þið haft samband í síma Krafts 866-9600
Sjáumst í Ljósinu yfir rjúkandi heitum bolla í kósý stemmingu!