Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Kaffihúsakvöld og spilagrín

3. apríl 2019 @ 20:00 - 22:00

Næsta kaffihúsakvöld Krafts verður haldið miðvikudaginn 3.apríl og í þetta skiptið ætlum við að spila snilldar spilið Cards Against humanity…..spil sem fær alla til að hlæja. Önnur spil verða líka á staðnum

Fyrir utan það að taka í spil að þá eru kaffihúsakvöldin fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur til að geta hitt aðra í svipuðum sporum og spjallað.

Fulltrúar frá Krafti taka vel á móti ykkur yfir rjúkandi heitum kaffi/tebolla og annarri hressingu 🙂 Ef þið hafið einhverjar spurningar getið þið haft samband í síma Krafts 866-9600.

Þetta er opið hús svo fólk getur komið og kíkt við eins og það vill 🙂

Sjáumst í Krafti yfir rjúkandi heitum bolla í kósý stemmingu!

Upplýsingar

Viðburðahaldari

Staðsetning

  • Kraftur – Stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur
  • Skógarhlíð 8
    Reykjavík, Reykjavík 105 Iceland
    + Google Map
  • Sími 8669600
  • View Staðsetning Website