Komdu með okkur í núið undir handleiðslu Eddu M. Guðmundsdóttur.
Edda er lærður sálfræðingur og hefur sérhæft sig í núvitundarmiðuðum meðferðarúrræðum. Hún starfar meðal annars hjá Núvitundarsetrinum og hefur mikla og góða reynslu af því að kenna núvitund og ætlar að hjálpa okkur læra að nota núvitund og hugleiðslu til að auka lífsgæði okkar.
Námskeiðið fer fram í Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 dagana 10. og 24. mars frá 19:30 til 21:30.
Mikilvægt er að skrá sig því takmörkuð pláss eru í boði. Skráning fer fram hér