Halldór Kr. Sigurðsson konditor og bakari ætlar að kenna okkur að útbúa okkar eigið konfekt, hversu æðislegt er það.
Þetta er kjörið tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt fyrir hátíðina, því hver elskar ekki súkkulaði
Námskeiðið er aðeins fyrir félagsmenn Krafts og er að sjálfsögðu þeim að kostnaðarlausu, en þeir sem skrá sig á námskeiðið munu fá sendan hráefnalista og lista yfir áhöld sem þátttakendur þurfa að hafa við höndina þegar kennslan hefst.
Komdu og vertu með… hver veit nema einhver í fjölskyldunni fái að njóta kræsinganna, það er ef eitthvað verður eftir 🙂