Ert þú karlmaður og hefur greinst með krabbamein eða ert aðstandandi? Viltu heyra í jafningjum sem gengið hafa í gegnum svipaða reynslu? Þá mælum við eindregið með því að þú komir á Kex hostel fimmtudagskvöldið 19. mars klukkan 19:30.
Þá ætlum við strákarnir að hittast og þú getur komið og hlustað á jafningja sem skilja þig. Það getur verið gott að heyra hvernig aðrir hafa tæklað hlutina. Matti Osvald Stefánsson, markþjálfi, og Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts, munu leiða þessa kraftmiklu strákastund.
Einnig munu þessir reynsluboltar koma og segja frá:
Nonni í Quest mun mæta á svæðið og gefa okkur ráð hvernig herramenn geta viðhaldið góðu skeggi og hári. Við bjóðum líka upp á skemmtilegt tónlistaratriði í lok kvölds.
Það verður tilboð á veitingastaðnum Sæmundur í Sparifötunum fyrir stráka sem mæta á svæðið.
Við mælum með að þú komir á þessa snilldar strákastund – taktu endilega með þér vin því við getum ábyggilega allir speglað okkur í einhverjum af þeim reynsluboltum sem munu stíga fram og segja frá sinni reynslu.
Sjáumst á strákastundinni