Kraftur er 20 ára árið 2019 og af því tilefni munum við halda Lífið er núna Festival á Hótel Hilton laugardaginn, 12. janúar. Um er að ræða fyrsta viðburð sinnar tegundar hér á Íslandi en þetta er sannkölluð veisla þar sem við verðum með vinnustofur um daginn og partý um kvöldið.
Það verða ýmsar vinnustofur um daginn og þú getur valið t.d.:
Ekki má gleyma að við verðum svo með þrusu partý um kvöldið þar sem við bjóðum upp á fordrykk og mat og ýmsir tónlistarmenn munu stíga á stokk.
Við munum senda skráningarpóst á vinnustofurnar síðar í desember en til að tryggja þér pláss þá þarftu að skrá þig núna og borga smá staðfesingargjald (2500 kr.) en Festivalið er annars þér að kostnaðarlausu. Þau sem búa út á landi munu meira að segja fá ferðastyrk og gistingu á Hilton sér að kostnaðarlausu.
Nú þarftu bara að skrá þig til að tryggja þér sæti