Ekki láta þessa helgi fram hjá þér fara – einungis pláss fyrir 20 manns – skráðu þig strax í dag en um er að ræða frábæra helgi sem kostar einungis 2500 krónur á mann með öllu.
Lífið er núna helgin er endurnærandi og uppbyggjandi helgi fyrir félagsmenn Krafts í samstarfi við KVAN þar sem þú færð tækifæri á að læra það hvernig þú getur tekist á við breyttar aðstæður í lífi þínu og kynnast öðrum í svipuðum sporum.
Saman munum við:
Þetta verður dásamleg helgi í fallegu umhverfi við borgarmörkin þar sem við munum líka borða hollan og góðan mat, vera með kvöldvökur og njóta þess að hafa gaman saman. Helgin verður haldin í náttúruperlunni við Elliðavatn og gistum við tvær nætur á hótel Kríunesi
Allt – matur, fræðsla, skemmtun og gisting innifalin í staðfestingargjaldinu, 2500 krónum.
Hægt er að skrá sig hér – þetta er tækifæri sem gefst ekki á hverjum degi – Lífið er núna!