Ekki láta þessa helgi fram hjá þér fara – takmörkuð pláss í boði – skráðu þig strax í dag en um er að ræða frábæra helgi dagana 4.-6. júní .
Þar sem samkomutakmarkanir og Covid ástand í samfélaginu hefur sett strik í reikninginn síðust mánuði, ætlum við að reyna að gleyma ástandinu og skella okkur á vit ævintýranna í Ensku húsunum sem er kósý gistiheimili við Langá á Mýrum í Borgarfirðinum. Fylgstu með viðburðinum á facebook.
Lífið er núna helgin er endurnærandi og uppbyggjandi helgi fyrir félagsmenn Krafts þar sem þú færð tækifæri á að læra það hvernig þú getur tekist á við breyttar aðstæður í þínu lífi og kynnast öðrum í svipuðum sporum.
Dagskrá verður send í tölvupósti til þátttakenda.
Helgin er bæði hugsuð fyrir krabbameinsgreinda sem og aðstandendur.
„Þessi helgi var ómetanleg fyrir okkur sem par,“ segir aðstandandi krabbameinsgreindrar konu en þau komu í síðustu Lífið er núna helgi.
Tryggðu þér sæti strax í dag.