Ekki láta þessa helgi fram hjá þér fara – einungis pláss fyrir 20 manns – skráðu þig strax í dag en um er að ræða frábæra helgi dagana 31.maí – 2.júní í náttúruperlunni við Úlfljótsvatn. Helgin er bæði hugsuð fyrir krabbameinsgreinda sem og aðstandendur.
Lífið er núna helgin er endurnærandi og uppbyggjandi helgi fyrir félagsmenn Krafts í samstarfi við KVAN þar sem þú færð tækifæri á að læra það hvernig þú getur tekist á við breyttar aðstæður í þínu lífi og kynnast öðrum í svipuðum sporum.
Saman ætlum við að:
*Nánari dagskrá verður send út þegar nær dregur.
Þetta verður dásamleg helgi í fallegu umhverfi við náttúruperluna Úlfljótsvatn þar sem við munum gista í Úlfljótsvatnsskála Luxury lodge. Skálinn er ævintýri líkastur þar sem við ætlum að borða hollan og góðan mat, halda kvöldvökur, skella okkur í heita pottinn, saununa og kveikja varðeld á sumarkvöldunum. Gist verður tvær nætur.
Allt – matur, fræðsla, skemmtun og gisting innifalin í staðfestingargjaldinu, 2500 krónum.
Hægt er að skrá sig hér – þetta er tækifæri sem gefst ekki á hverjum degi – Lífið er núna!