Norðan – Kraftur er stuðningshópur fyrir ungt fólk (45 ára og yngri) sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur staðsettur á Akureyri.
Norðan-Kraftur mun hittast annan annan hvern miðvikudag í vetur. Tímasetningar eru misjafnar en yfirleitt um eða eftir kvöldmat.
Boðið verður bæði upp á ýmiskonar skemmtilega viðburði þar sem við komum saman og hittum aðra í sambærilegum sporum.
Hópurinn er samstarfsverkefni Krafts og Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Hópurinn er starfræktur frá Akureyri.
Mið. 2.okt. kl. 20:00
PubQuiz NorðanKrafts
Þau á Bláu Könnunni ætla að taka vel á móti okkur og munum við njóta aðstoðar Ásþórs Sigurgeirssonar sem ætlar að vera spyrill kvöldsins.
Mið . 16. okt. kl. 17:00
NorðanKraftur prófar SUP (Stand up paddleboard)
Hún Sigríður Ýr eða Sigga, hjá Venture North ætlar að taka á móti okkur og leyfa okkur að prófa SUP en það er það allra heitasta í dag!
Mið. 23.okt.kl. 17:15
Streymt frá fræðslufyrirlestri Krafts – Streita og veikindi – hvað er til ráða?
Sálfræðingarnir Sóley Dröfn Davíðsdóttir og Anna Sigríður Jökulsdóttir, frá Kvíðameðferðarstöðinni fjalla um streitustjórnun og óvissuþol.
Mið. 30.okt. kl. 20:15
NorðanKraftur – Yoga í Ómi
Arnbjörg í Ómi Yoga setri ætlar að bjóða okkur að koma til sín og rækta líkama og sál.
Frekari upplýsingar eru inn á hópi NorðanKrafts – Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn hér.