Einbeiting og minni – minnisnámskeið fyrir NorðanKraft verður haldið föstudaginn 16.nóvember í húsnæði KAON.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhyggjur af minni sínu í kjölfar veikinda en einnig þeim sem vilja fræðast um minnið og læra að nýta sér mismunandi minnistækni. Á námskeiðinu er veitt fræðsla um einbeitingu og minni. Farið er í hvaða þættir geta haft áhrif og hvað við getum gert til þess að bæta einbeitingu og minni.
Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur Krafts og Ráðgjafarþjónustunnar.
Dagskrá – nóvember
16.nóvember kl. 18 – 20
Minnisnámskeið. Þorri sálfræðingur Krafts kennir gagnlegar leiðir til að bæta minni.
20.nóv 2018 kl. 17 – 18:30
Fræðslukvöld – Pálmar Ragnarsson – Jákvæð samskipti og hugarfar
27.nóvember kl. 11:30
Hádegisspjall. Boðið verður upp á léttan hádegisverð.
Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn hér.