NorðanKraftur er stuðningshópur fyrir ungt fólk (45 ára og yngri) sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur staðsettur á Akureyri.
NorðanKraftur mun hittast annan annan hvern miðvikudag í vetur. Tímasetningar eru misjafnar en yfirleitt um eða eftir kvöldmat.
Boðið verður bæði upp á ýmiskonar skemmtilega viðburði þar sem við komum saman og hittum aðra í sambærilegum sporum.
Hópurinn er samstarfsverkefni Krafts og Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Hópurinn er starfræktur frá Akureyri.
Fim. 5. MARS kl. 16:30-18:30
Hrúturinn – ráðstefna KAON um karla og krabbamein verður haldin í Hofi í tilefni af Mottumars. Sjá nánar hér.
Þri. 10. MARS kl. 20:00
Pílukvöld hjá NorðanKrafti með Þór. Sjá nánar hér
Fös. 27. MARS – Sun. 29. MARS
Skíðaferð Krafts á Akureyri í umsjón NorðanKrafts. Sjá nánar hér.
Lau. 28. MARS kl. 20:30 – 22:00
PubQuiz NorðanKrafts verður haldið á Kaffi Kú á Akureyri. Þrælskemmtileg kvöldskemmtun sem þú ættir ekki að missa af. Sjá nánar hér.
____________________________________________
Umsjón með hópnum hefur Sara Ómarsdóttir, starfsmaður og félagsmaður hjá Krafti.
Frekari upplýsingar eru inn á hópi NorðanKrafts – Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn hér.