Langar þig að leggja Krafti lið með því að perla armbönd til styrktar félaginu?
Við munum halda perluviðburð í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlið 8 sunnudaginn 29. mars. Þar getur þú og þínir komið og lagt hönd á perlu í lengri eða skemmri tíma og notið þess að gefa af þér en allur ágóði af sölu armbandanna rennur í starfsemi félagsins. Armböndin eru í svokölluðu norðurljósalitum með áletruninni „Lífið er núna“.
Við verðum að sjálfsögðu með heitt á könnunni og hlökkum til að sjá þig.