- Þessi viðburður er liðinn.
Perlað af Krafti með Sunnlendingum og HSK

Komdu og hjálpaðu HSK að ná perlubikarnum til sín!
Kraftur leggur leið sína til Selfoss og perlar með Sunnlendingum, HSK og aðildarfélögum þess, miðvikudaginn 20. júní frá kl. 16-20 í Fjallasal Sunnulækjarskóla á Selfossi.
Með því að taka þátt í viðburðinum geta Sunnlendingar átt möguleika á að hreppa perlubikarinn en til þess þarf að perla meira en 2302 armbönd á fjórum tímum en það met settu Akureyringar og íþróttafélögin þar í byrjun maí. Akureyringar náðu þá bikarnum af Eyjamönnum en skoruðu svo á Austfirðinga og gerðu þeir gott betur og eru nú í öðru sæti á perlubikarsmótinu með 1673 perluð armbönd. Perlubikarinn hljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd.
Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum þau eru seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.
Við hvetjum Sunnlendinga sem og leikmenn og stuðningsmenn HSK að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.
Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!
KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥